Toulouse lagði Frakklandsmeistara Lyon 12. ágúst 2007 13:06
Toulouse sem mætir Liverpool í forkeppni Meistaradeildarinnar í vikunni, gerði sér lítið fyrir og lagði Frakklandsmeistara Lyon þegar liðin mættust í frönsku úrvalsdeildinni í gær. Meistarar Lyon sem leika hér í gulum og svörtum treyjum urðu fyrir skakkaföllum á 35. mínútu þegar sænski miðjumaðurinn Kim Kallstrom var rekinn af velli með rauða spjaldið. Kallström gerðist sekur um brot og óhóflegt orðaval við dómarann en skaphiti hans var kannski skiljanlegur þegar litið er á endursýningu að formálanum. Ekki má annað sjá en að Kallström hafi fengið olnbogann í andlitið frá Nicolas Dieuze leikmanni Toulouse án þess að dómarinn tæki eftir. Þrátt fyrir liðsmuninn reyndist það heimamönnum í Toulouse erfitt að koma boltanum í netið. Mauro Cetto var þó nálægt því en skalli hans fór í þverslána. Lyon varð fyrir enn frekari skakkaföllum í síðari hálfleik þegar meistararnir misstu Sidney Govou og fyrirliðann Cris meidda af velli. Það stefndi í markalaust jafntefli þar til á loka-andartökum leiksins þegar Svíinn Johan Elmander skoraði eina mark leiksins fyrir heimamenn í Toulouse sem landaði þar með sínum fyrsta sigri á tímabilinu. Keppni í úrvalsdeildinni er þó aðeins nýhafin og annarri umferð deildarinnar lýkur í dag.
Fótbolti Mest lesið Skotið sem geigaði og breytti öllu fyrir Ísland Handbolti Íslendingar bregðast við stórtíðindum kvöldsins: „Takk fyrir Jesú“ Handbolti Skýrsla Henrys: Andlegt gjaldþrot enn og aftur Handbolti Íslenskur sigur á morgun gulltryggir sæti í undanúrslitum Handbolti „Snorri á alla mína samúð“ Handbolti Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Lærisveinar Arons úr leik eftir tap í framlengdum leik Handbolti Segir að hrokinn hafi orðið Frökkum að falli Handbolti Króatar Dags í góðri stöðu en Ísland í þröngri stöðu Handbolti Elín fær sætið hennar Hólmfríðar Sport Fleiri fréttir Víkingur og Valur mætast í úrslitum Reykjavíkurmótsins Hlín á láni til Fiorentina FH selur Sigurð Bjart til Spánar Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Börsungar ósáttir eftir að PSG náði táningi frá þeim Barry bjargaði stigi fyrir Everton Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Kristall snýr aftur „þroskaðri og fullorðnari“ Sagðir borga 200 milljónir fyrir Kristal Mána Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Sjá meira