Fótbolti

Beckham spilaði í gærkvöldi

Andri Ólafsson skrifar
Beckham átti fínan leik í gærkvöldi
Beckham átti fínan leik í gærkvöldi NordicPhotos/GettyImages

David Beckham spilaði í gærkvöld fyrsta leik sinn í bandarísku MLS deildinni fyrir Los Angeles Galaxy. Beckham hefur átt við meiðsli að stríða á ökkla og hefur aðeins leikið fáeinar mínútur í vináttuleik við Chelsea síðan hann gekk til liðs við Galaxy.

Það var á 72. mínútu leiks Galaxy við DC United í gærkvöld sem Beckham kom inn á. Galaxy var 1-0 undir í leiknum en þrátt fyrir að vera hvattur óspart áfram náði Beckham ekki að breyta stöðu leiksins.

Í lok leiks sagðist hann sáttur við frammistöðu liðsins þrátt fyrir tapið og vonaðist um leið að getað á næstunni losað sig við meiðslin sem hafa hrjáð hann undanfarið.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×