Fótbolti

Fótboltamenn fluttir á sjúkrahús með niðurgang

Delia Smith þykir umdeild í meira lagi
Delia Smith þykir umdeild í meira lagi
Fjórir leikmenn Norwich voru fluttir á sjúkrahús í gær eftir að fengið heiftarlega matareitrun í grillveislu sem eigandi liðsins, stjörnukokkurinn Delia Smith, stóð fyrir.

Alls voru 30 manns flutt á sjúkrahús eftir grillveisluna, auk leikmannana, veiktust starfsmenn Norwich, leikmenn yngri flokka og fjölskyldumeðlimir. Leikmennirnir sem um ræðir missa að öllum líkindum af leik liðsins um næstu helgi á meðan þeir eru að jafna sig á veikindunum.

Málið mun síst til þess fallið að auka á vinsældir eiganda Norwich. En Delia Smith hefur löngum þótt umdeild á meðal stuðningsmanna liðsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×