Breski herinn sakaður um að sleppa skrímslum í Basra 13. júlí 2007 11:59 Eitt skrímslanna murkar lífið úr snáki.
Breski herinn í Basra í Írak liggur nú undir ámæli fyrir að standa fyrir plágu af risavöxnum mannýgum greifingjum þar í borg. Undanfarnar vikur hafa sögusagnir geisað um að risavaxin loðin skrímsli gangi um úthverfi borgarinnar og ráðist jafnt á búfénað og menn. Fyrst sást til skrímslanna nálægt herstöð Breta og kveikti það á sögusögnum þess efnis að þeir hefðu sleppt ófreskjunum til að skelfa íbúa borgarinnar. Bretarnir áttu í stökustu vandræðum með að útskýra fyrirbærið þangað til að bóndi í nágrenninu veiddi nokkur dýranna. Þau reyndust vera hunangsgreyfingjar, sérlega illskeytt greifingjategund með langar klær sem vílar ekki fyrir sér að ráðast á kóbraslöngu þurfi hún þess með. Breski herinn þverneitar ásökununum. ,,Við neitum því afdráttarlaust að hafa sleppt mannætugreifingjum á svæðinu" sagði Mike Shearer, talsmaður breska hersins í yfirlýsingu. ,,Að halda því fram að við eigum hlut að máli er rangt, og óvísindalegt." Bretarnir hafa verið sakaðir um allskonar misgjörðir í Basra, nú síðast greifingjafaraldurinn og að sleppa snákum í vatnskerfi borgarinnar. Greifingjarnir eru ekki þekktir fyrir að ráðast á fólk án þess að vera áreittir. Talsmaður hersins í Basra, David Gell, sagði þó að króaði maður einn þeirra af og potaði í hann með priki myndu hann hiklaust veðja á greifingjann. Náttúruleg heimkynni hunangsgreifingja eru í Afríku og Mið-Austurlöndum, en þeir hafa hingað til ekki verið algengir í Írak. Vísindamenn telja að þeim hafi fjölgað í Basra vegna þess að þeir séu að flýja votlendi sem verið er að endurheimta norður af borginni.
Mest lesið Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Fullkomin lending eftir sögulega ferð Erlent Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent „Arc de Trump“ rísi í Washington Erlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Veður Fleiri fréttir Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Sjá meira