Icelandair hyggst kæra ákvörðun Samkeppniseftirlitsins 30. mars 2007 16:40 MYND/Anton
Icelandair hyggst kæra þá ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá því fyrr í dag, þar sem félagið var sektað um 190 milljónir króna fyrir samkeppnisbrot, til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Fram kemur í tilkynningu Icelandair vegna málsins að félagið telji sig hafa farið í einu og öllu eftir samkeppnislögum og ákvörðun áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá árinu 2003, sem staðfesti að Icelandair væri heimilt að kynna og selja Netsmelli með þeim hætti sem gert var. Þar hafi Icelandair fengið leiðbeinandi úrskurð sem félagið fylgdi. Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nú þremur árum síðar í gagnstæða átt veki spurningar um verklag samkeppnisyfirvalda, en félagið er sektað vegna þess sem kallað er skaðleg undirverðlagning með Netsmellum um svipað leyti og Iceland Express kom inn á markaðinn. Icelandair bendir enn fremur á að flugmarkaðurinn hafi verið undir smásjá samkeppnisyfirvalda um árabil og Icelandair hafi ávallt farið að öllum úrskurðum frá yfirvöldum og muni gera áfram. Við blasi að samkeppni í áætlunarflugi til og frá landinu sé hörð og Icelandair áskilji sér fullan rétt til þess að taka af krafti þátt í þeirri samkeppni neytendum til hagsbóta. „Rétt er að vekja athygli á því að Icelandair er eini íslenski flugrekandinn sem stundar áætlunarflug milli Íslands og annarra landa. Auk Icelandair eru nú á þessum markaði svissneska flugfélagið Hello, breska flugfélagið Astreus og danska flugfélagið Sterling, sem fljúga undir merkjum Iceland Express, skandinavíska flugfélagið SAS og breska flugfélagið British Airways. Auk þess fljúga fjölmörg erlend flugfélög leiguflug frá Íslandi fyrir innlendar ferðaskrifstofur. Markaðshlutdeild Icelandair á flugmarkaðinum frá Íslandi er um 50%," segir að endingu í tilkynningu Icelandair.
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Fleiri fréttir Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira