Varaði við stöðvun eða frestun vinstri manna 14. mars 2007 21:14 MYND/GVA
Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði ekki sjálfgefið að lífskjör landsmanna héldu áfram að batna og varaði við hugmyndum Vinstri - grænna og Samfylkingarinnar um frestun og eða stöðvun framkvæmda.„Stopp þýðir afturför ... ótti við breytingar skilar okkur engu," sagði Geir í ræðu sinni í eldhúsdagsumræðum á Alþingi. Geir sagði enn fremur að að yrðu ekki áframhaldandi framfarir í landinu ef stjórnmálamenn drægju kjarkinn úr fólki og hvettu athafnamenn til að halda að sér höndum. Sagði hann vinstri flokka alla tíð hafa lagt stein í götu framþróunar í atvinnulífi og með því ynnu þeir gegn hagsmunum almennings. Ekki væri gott að vera alltaf á móti eins og Vinstri - græn eða tala tungum tveim eins og Samfylkingin. Ekki væri gott ef þessir flokkar kæmu saman í ríkisstjórn. Geir sagði mikilvægt að spilað yrði úr verðmætum sem yrðu til í samfélaginu með sanngörnum hætti og þeir sem verst væru settir fengju sinn skerf af því. Unnið hefði verið að því með myndarlegum hætti með aðkomu aldraðra og öryrkja. Frelsi til athafna og atvinnuuppbyggingar væri forsenda velmegunar og þess að hægt væri að gera vel við þá sem minna mættu sín. Geir gerði auðlindamálið að umtalsefni og gagnrýndi að stjórnarandstaðan hefði breytt afstöðu sinni til málsins eftir að hafa boðist til að hjálpa til við framgang þess. Það væri æskilegt að sem mestur einhugur ríkti um stjórnarskrána og hann vonaði að enn næðist sátt um málið. Geir sagði ljóst að vel hefði tekist að vinna úr þeim breytingum sem urðu með brotthvarfi Bandaríkjahers í fyrra og á varnarsvæðinu væru gríðarleg tækifæri. Ríkisstjórnin hefði svo staðið vel að viðræðum við nágrannaríkin um samstarf í öryggismálum. Íslendingar hefðu einnig verið á réttri leið í Evrópumálum og ekkert knýði á um breytingar á þeim vettvangi. Umræðan í umhverfismálum á villigötum, sagði Geir. Íslenskt hugvit íslenskra orkufyrirtækja væri orðið eftirsóknarvert og við værum fyrirmyndir annarra þjóða í þeim efnum. Þjóðarauðurinn væri ekki falinn bara í fallvötnum heldur í hugviti hér á landi og sérþekkingu. Gríðarleg tækifæri væru í útrás þessari. Umhverfismál ættu að snúast um fleira en álver og virkjanir. Geir sagði að lífskjör landsmanna hefðu batnað meira en nokkru sinni fyrr á síðustu árum og skuldir ríkisins minnkað mikið á sama tíma. Pólitísk hugmyndafræði hefði gengið út á að virkja kraft einstaklingsframtaksins þjóðiinni allri til heilla. Kjóendur yrðu að átta sig á því að það væri raunveruleg hætta á vinstri stjórn. Ríkisstjórnin legði sín verk óhrædd í dóm stjórnenda og dapurlegt yrði að sjá þau verk sem unnið hefðu verið á síðustu árum snúast upp í andhverfu sína.
Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Sjá meira