Siv hótar stjórnarslitum 2. mars 2007 18:53
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra, hótaði nú síðdegis stjórnarslitum ef Sjálfstæðisflokkurinn stæði ekki við það ákvæði stjórnarsáttmálans að sameign þjóðarinnar á auðlindum verði fest í stjórnarskrá. Þetta kom fram í umræðum á flokksþingi Framsóknarflokksins. Fyrr í dag hafði formaðurinn, Jón Sigurðsson, sagt stjórnarandstöðuflokkana boða eyðsluveislu, - þeir virtust ætla að leggja ríkissjóð í rúst á mettíma.Framsóknarmenn eru komnir saman til tveggja daga flokksþings á Hótel Sögu þar sem áherslur fyrir komandi kosningar eru mótaðar. Þegar kom að ræðu formanns fluttu þeir sig hins vegar yfir í Borgarleikhúsið. Jón Sigurðsson varði þar mestum tíma til að lýsa þeim árangri sem náðst hefur. Um samstarfsflokkinn í ríkisstjórn fór hann mildum orðum en minnti þó á að eitt væri ógert. Framsóknarmenn legðu ákaflega þunga áherslu á að staðið yrði við það ákvæði í samstarfssamningi ríkisstjórnarinnar sem kveður á um sameign þjóðarinnar á auðlindum. Siv Friðleifsdóttir gekk reyndar svo langt í umræðum síðdegis að hóta stjórnarslitum. Ef ekki næðist niðurstaða í málinu gæti myndast svo mikil gjá milli flokkana að samstarfið lifði það ekki af. Svo gæti samstarfið trosnað annaðhvort minnihlutastjórn eða starfsstjórn yrði að stjórna landinu fram til kosninga. Kvaðst hún þó vonast til að sjálfstæðismenn sæju að sér.Jón Sigurðsson gagnrýndi annars stjórnarandstöðuna harðlega.Hann sagði andstæðingana skorta skilning á arðvænlegu atvinnu- og viðskiptalífi. Sumir þeirra væru farnir að tala um stöðvun á allri iðnþróun um eitthvert árabil. Hann varaði við slíkum hugmyndum, sagði þær leiða af sér stopp-start vitleysu í hagstjórn eða stopp-stopp, sem væri ennþá verra. Hann sagði þá ætla að bjóða til eyðsluveislu á kostnað almennings. Almenningur yrði að kynna sér eyðsluplön þeirra. Þeir virtust ætla að leggja ríkissjóð í rúst á mettíma.
Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Fleiri fréttir Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Sjá meira