Jón Baldvin ekki á lista Samfylkingarinnar 28. febrúar 2007 18:33
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, verður ekki á framboðslista Samfylkingarinnar. Boð um að hann tæki heiðurssæti á lista flokksins í Reykjavík var, að sögn Jóns Baldvins, dregið til baka í samtali sem þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir áttu í kjölfar Silfurs Egils í síðasta mánuði.Samfylkingin hefur nú gengið frá öllum framboðslistum sínum fyrir komandi þingkosningar og vekur athygli að nafn Jóns Baldvins Hannibalssonar er þar hvergi að finna. Það hefur lengið tíðkast hérlendis að fyrrverandi stjórnmálaleiðtogar, sem sest hafa í helgan stein, skipi heiðurssæti á lista þess flokks sem þeir fylgja að málum. Því hefðu margir búist við að Jón Baldvin yrði í slíku sæti enda var hann sem formaður Alþýðuflokksins og ráðherra helsti leiðtogi jafnaðarmanna um árabil. Þannig skipar gamall samherji hans, Jón Sigurðsson, eitt af heiðurssætum á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Í Silfri Egils í síðasta mánuði hótaði Jón Baldvin hins vegar um nýju framboði.Jón Baldvin sagði í samtali við Stöð 2 í dag að sér hafi um áramótin verið boðið að taka heiðursæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Segir Jón Baldvin að formaður Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hafi hins vegar dregið það boð til baka á fundi sem þau áttu í kjölfar sjónvarpsþáttarins Silfurs Egils. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði í dag aðspurð um samskipti þeirra tveggja að ekkert boð hefði verið afturkallað og þátturinn Silfur Egils hefði ekkert með þetta að gera. Hvorki Jón Baldvin né Ingibjörg Sólrún vildu í dag að ræða málið nánar í sjónvarpsviðtali.
Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Sjá meira