Innlent

Baráttufundur gegn virkjunum í Þjórsá í dag

Andstæðingar þriggja virkjana, sem áformaðar eru í neðri hluta Þjórsár, boða til baráttufundar gegn þeim í félagsheimilinu Árnesi í dag. Nær engin andstaða var gegn þessum virkjunum þegar þær fóru í gegnum umhverfismat fyrir þremur árum.

Virkjanirnar þrjár runnu tiltölulega ljúflega í gegnum umhverfismat og er athyglisvert að þegar Skipulagsstofnun samþykkti Núpsvirkjun sumarið 2003 barst aðeins ein kæra. Umhverfisráðherra staðfesti svo umhverfismatið í apríl 2004. Náttúruverndarsamtök börðust á þeim tíma ákaft gegn virkjun Þjórsár á hálendinu við Norðlingaöldu en létu þessar þrjár virkjanir í sveitum Suðurlands á sama tíma í friði.

Nú virðist komið annað hljóð í strokkinn. Náttúruverndarsamtök Suðurlands og Sól á Suðurlandi boða til baráttufundar í félagsheimilinu Árnesi klukkan þrjú í dag og er tilgangurinn að sögn að safna saman andstæðingum þriggja virkjana í neðri hluta Þjórsár og blása til frekari andstöðu við áform Landsvirkjunar. Á fundinum verður meðal annars sýnd kvikmynd Ómars Ragnarssonar um Þjórsá. Virkjanirnar eru háðar stækkun álversins í Straumsvík en Landsvirkjun hyggst selja raforkuna til Alcan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×