Innlent

Páfagauki stolið af fuglasýningu

Páfagaukur eins og sá sem stolið var.
Páfagaukur eins og sá sem stolið var.

Verðmætum páfagauki var stolið af fuglasýningu í Blómaval í Skútuvogi í gær. Fuglinn er Sun Conor fugl og hvarf hann rétt fyrir lokun í búðinni. Fuglinn var laus en þar sem hann er vængstýfður er ljóst að hann hefur ekki komist burt sjálfur.

Fuglinn er hátt í tvö hundruð þúsund króna virði. Hann er með grænan búk og appelsínugult höfuð. Þeir sem gætu haft einhverjar upplýsingar um hvarf fuglsins eru beðnir að hringja Gunnar Vilhelm í síma 896-6090. Fuglinn kostar 170.000 krónur

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×