Skipverjar Castor Star bíða enn eftir launum 10. febrúar 2007 12:05
Ekkert þokast í málum skipverja á flutningaskipinu Castor Star sem er við Grundatangahöfn. Fulltrúi útgerðarinnar kom aftur um borð í skipið í morgun en skipverjarnir hafa enn ekki fengið launin sín greidd. Það var á miðvikudaginn sem skipið kom til Grundartanga með súrál. Eftirlitsmaður frá Sjómannafélagi Íslands kannaði aðbúnað um borð og sögðu skipverjarnir honum þá að þeir hefðu engin laun fengið síðan í september auk þess sem matur væri af skornum skammti. Sjómannafélag Íslands og Alþjóðaflutningasambandið stöðvuðu því uppskipun í fyrradag en þá voru enn eftir um átta tonn af súráli í skipinu. Birgir Hólm Björgvinsson, framkvæmdastjóri Sjómannafélagins, sagði í samtali við fréttastofu fyrir hádegi að lítið þokaðist í samkomulagsátt. Fulltrúi útgerðarinnar kom til landsins í gær og réði þá ráðum sínum með íslenskum lögfræðingi. Áhafnarmeðlimir skrifuðu undir bréf þar sem þeir veittu Sjómannafélagi Íslands umboð til að sjá viðræður við útgerðina. Birgir segir félagið hafa rætt við fulltrúa útgerðarinnar í gær en þá hafi þeir aðeins boðist til að greiða helming launanna. Auk þess að fara fram á að fá vangreidd laun hafa skipverjar nær allir, utan skipstjóra og tveggja annarra, lagt fram skriflega kröfu um nýja samninga sem byggja á reglum Alþjóðaflutningasambandsins. Í morgun kom fulltrúi útgerðarinnar aftur um borð í skipið. Hann hefur hins vegar ekkert rætt við eftirlitsmenn frá Sjómannafélaginu sem standa fast á því að uppskipun hefjist ekki á ný fyrr en skipverjar fá laun sín greidd.
Mest lesið Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Erlent Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Erlent Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Innlent Algjörlega óásættanleg staða Innlent Bein útsending: Trump kynnir friðarráðið Erlent Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Erlent Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Innlent Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Erlent Fleiri fréttir „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Náðu sex byssum úr byssuskáp á Akureyri Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Sjá meira