Innlent

Valgerður vill sömu ríkisstjórn áfram

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra segir best fyrir Ísland að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks haldi áfram eftir kosningar.

Valgerður var mjög ákveðin þegar hún mælti með því í hádegisviðtalinu á Stöð 2 að sömu flokkar héldu áfram fengju þeir til þess traustan meirihluta í þingkosningum í maí. Hún segir að þessir flokkar hafi náð gríðarmiklum árangri. Þeir hafi haldið vel saman í stórum málum. Hún vildi ekki svara því hvað flokkarnir þyrftu mikinn meirihluta til að fara aftur saman í stjórn en kvaðst trúa því að Framsóknarflokkurinn næði góðum árangri. "Ég finn að landið er að lyftast," sagði Valgerður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×