Innlent

Afar hæpið að löglegt hafi verið leyfa Straumi-Burðarás að taka upp evru

Davíð Oddsson segir það mat Seðlabankans að afar hæpið sé að farið hafi verið að lögum þegar Straumur-Burðarás fékk heimild til að skrá bókhald sitt í evrum. Seðlabankinn gerði athugasemd við fjármálaráðuneytið en leyfið hafði þá þegar verið veitt.

Mikla athygli vakti fyrir jól þegar Straumur-Burðarás ákvað að skipta yfir í evru sem uppgjörsmynt og varð þar með fyrsti banki landsins til að yfirgefa krónuna. Seðlabankinn hafði áður heimilað bankanum að hafa rýmri gjaldeyrisjöfnuð en reglur kveða á um en það var hins vegar svokölluð ársreikningaskrá, sem heyrir undir ríkisskattstjóra, sem veitti Straumi-Burðarás leyfi til að taka um evrubókhald.

Viðtalið við Davíð Oddsson má sjá hér




Fleiri fréttir

Sjá meira


×