Innlent

Risasamningur um markaðssetningu á diski Silvíu Nætur

Íslenska útgáfufyrirtækið Reykjavik Records hyggst á morgun undirrita stærsta hljómplötusamning sem gerður hefur verið hér á landi um markaðssetnignu á nýjum geisladiski Silvíu Nætur á alþjóðavettvangi.

Fram kemur í tilkynningu frá Reykjavik Records að tugum milljóna verði varið í markaðssetningu á diski Silvíu Nætur á næstu mánuðum. Á bak við Reykjavik Records standa mörg af athafnaskáldum Íslands ásamt fjárfestingarfélögum í eigu Straums Burðaráss og Brú Venture svo einhver séu nefnd.

Verður samningurinn undirritaður í Hvalveiðiskipinu Eldingu sem aðstandendur segja við hæfi og vísa þar í áhrif íslenskra hvalveiða á landkynningarátak Nylon-flokksins í nóvember síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×