Innlent

Íslendingur lést í bruna í Stokkhólmi

Íslenskur karlmaður lést í bruna á veitingastað í Stokkhólmi aðfaranótt fimmtudagsins. Eftir því sem sænska dagblaðið Aftonbladet segir var um að ræða veitingastaðinn Engelen í hverfinu Gamla stan, sem er gamli bærinn í Stokkhólmi.

Lögregla og slökkvilið voru kölluð á vettvang um þrjúleytið í fyrrinótt og fann hún manninn látinn í ruslageymslu sem fyllst hafði af reyk. Eftir því sem haft er eftir lögreglunni í Stokkhólmi er ekki vitað hvers vegna maðurinn var staddur inni í geymslunni.

Enginn annar var á veitingastaðnum þegar eldurinn kom upp en lögregla segir í samtali við Aftonbladet að ekki sé talið að þetta hafi verið að utanaðkomandi völdum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×