Innlent

Sex ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnasmygl

MYND/E.Ól

Hæstiréttur staðfesti í dag sex ára dóm héraðsdóms yfir karlmanni á þrítugsaldri, Tryggva Lárussyni, sem ákærður var fyrir stórfelldan innflutning á amfetamíni. Tryggvi var ákærður ásamt fjórum öðrum einstaklingum fyrir að hafa staðið að innflutningi á hátt í átta kílóum af amfetamíni í júní og júlí 2004 en efnin voru flutt inn frá Hollandi.

Tryggva var gefið að sök að hafa lagt á ráðin um innflutninginn, annast kaup á efninu með óþekktum vitorðsmanni og hafa ætlað að taka á móti þeim á Íslandi en fíkniefnin fundust við leit tollvarða í Sundahöfn í Reykjavík.

Í dómi Hæstaréttar var ekki talið að ákæruvaldinu hefði tekist að færa nægar sönnur fyrir því að Tryggvi hefði sjálfur keypt efnin en talið var sannað að hann hefði að öðru leyti staðið að kaupunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×