Innlent

Fá engan launamiða frá Varnarliðinu

MYND/Heiða

Allt útlit er fyrir að fyrrverandi starfsmenn Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli lendi í vandræðum með að útfylla skattframtölin þar sem engir launamiðar berast frá Varnarliðinu. Frá þessu er greint á vef Víkurfrétta.

Þar segir að launabókhald Varnarliðsins hafi verið keyrt í gegnum kerfi sem vistað var hjá Skýrr en sá þjónustusamningur hafi runnið út í lok september þegar Varnarliðið fór af landi brott. Víkurfréttir hafi upplýsingar um að Skýrr hafi boðið framlengingu á samningnum en því erindi hafi ekki verið svarað og þar af leiðandi keyri Skýrr ekki út neina launamiða. Til þess þurfi fyrirtækið formlegt samþykki Varnarliðsins.

Þá segja Víkurfréttir að utanríkisráðuneytið hafi reynt að reka á eftir málinu í gegnum bandaríska sendiráðið hér á landi en það hafi engu skilað enn sem komið er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×