Innlent

Hafa ekki fengið laun síðan í september

Álverið á Grundartanga
Álverið á Grundartanga

Eftirlitsmenn á vegum Sjómannafélags Íslands og Alþjóðaflutningasambandsins stöðvuðu í hádeginu uppskipun úr flutningaskipi í Grundartangahöfn. Skipið siglir undir fána Panama, er í eigu grísks útgerðarmanns og telur áhöfnin 17 Úkraínumenn og Georgíumenn.

Að sögn annars eftirlitsmannsins hefur áhöfnin ekki fengið laun síðan í september og nær enginn matur er um borð. Útgerðarmaður skipsins er á leið hingað til lands frá Grikklandi vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×