Forsætisráðherra vill afnema tekjuskatt af söluhagnaði 8. febrúar 2007 12:00
Forsætisráðherra telur eðlilegt að afnema tekjuskatt af söluhagnaði á hlutabréfum. Þá vill ráðherra afnema ýmsa smærri skatta sem innheimtir eru með mikilli fyrirhöfn. Geir H Haarde forsætisaráðherra boðaði tiltekt í skattkerfinu á viðskiptaþingi í gær. Eitt af því sem hann vill skoða er skattlagning söluhagnaðar hlutabréfa. Í dag ber að greiða tekjuskatt af slíkum hagnaði, en ekki þarf að greiða slíkan skatt af arði af hlutabréfum.Hins vegar eru lögin þannig að fyrirtæki geta í raun frestað þessum skarttgreiðslum óendanlega, með því að nota söluhagnaðinn til endurfjárfestinga. "Að undanförnu hafa ýmsir aðilar brugðið á það ráð að stofna sérstök eignarhaldsfélög í löndum þar sem slík skattlagning er ekki fyrir hendi, til dæmis í Hollandi, í þeim eina tilgangi að komast hjá skattgreiðslum," sagði forsætisráðherra. Geir sagði að þessi skattur væri heldur ekki til staðar í Danmörku, Noregi og Svíþjóð og virtist víða annars staðar vera á undanhaldi. "Ég tel eðlilegt að breyta ákvæðum okkar laga og undanþiggja þessa skattlagningu hér á landi með sama hætti og í okkar nágrannalöndum að uppfylltum hliðstæðum skilyrðum og þar gilda," sagði forsætisráðherra. Þetta myndi ekki hafa í för með sér tekjutap fyrir ríkissjóð að mati Geirs. Þvert á móti mætti búast við hinu gagnstæða þar sem starfsemin færðist þá aftur til Íslands. Þá sagði Geir að hann teldi eðlilegt að leggja af ýmsa smærri skatta sem dýrt og flókið væri að innheimta, án þess að tilgreina hvaða skattar það væru.
Mest lesið Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Tólf látnir í hryðjuverkaárásinni í Ástralíu Erlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Erlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Erlent Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Innlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Fleiri fréttir Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Sjá meira