Innlent

Tvær á gjörgæsludeild eftir bílslys á Breiðholtsbrautinni

Slysið var rétt fyrir klukkan tíu í morgun á Breiðholtsbrautinni við Víðidal.
Slysið var rétt fyrir klukkan tíu í morgun á Breiðholtsbrautinni við Víðidal. MYND/Anton

Konurnar tvær sem slösuðust í árekstri á Breiðholtsbrautinni í morgun eru báðar á gjörgæsludeild Landspítala-háskólasjúkrahús. Þær hafa gengist undir skurðaðgerðir og eru með alvarlega áverka en eru með meðvitund. Önnur konan er tæplega tvítug en hin rúmlega þrítug.

 

 

Slysið var rétt fyrir klukkan tíu í morgun á Breiðholtsbrautinni við Víðidal. Ökumenn voru einir í bílunum en beita þurfti klippum til að ná báðum út. Lögreglan rannsakar nú tildrög slysins en talið er að öðrum bílnum hafi verið ekið yfir á öfugan vegarhelming.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×