Innlent

Búið að opna Ártúnsbrekku

Búið er að opna Ártúnsbrekku í Reykjavík aftur en henni var lokað í vesturátt, á öðrum tímanum í dag, eftir að pallbíll með flutningavang aftan í valt í brekkunni. Á flutningavagninum var jeppi sem valt einnig. Nokkuð af olíu lak úr bílunum og hreinsuðu slökkviliðsmenn hana. Bílstjóri pallbílsins var einn í bílnum og slasaðist hann ekki alvarlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×