Innlent

Hafísinn á undanhaldi

Hafísinn, sem nýverið lagðist inn á firði á Vestfjörðum, er á hraðri leið frá landi. Hann er nú kominn upp undir miðlínuna á milli Íslands og Grænlands og öll hætta af honum liðin hjá, að sögn Ásdísar Auðunsdóttur hjá Veðurstofunni.

Það eru kröftugar austanáttir, sem ýtt hafa ísnum frá landinu, og að sögn Ásdísar er spáð enn frekari austanátt fram yfir næstu helgi. Þá varð ekki vart við neinar nýjar ísspangir í ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×