Innlent

Fulltrúi forseta ekki á fund utanríkismálanefndar

Hvorki fulltrúi forsetaembættisins né utanríkisráðuneytisins mættu á fund utanríkismálanefndar í morgun, vegna setu forsetans í þróunarráði Indlands. Halldór Blöndal, formaður nefndarinnar, segir að utanríkisráðherra muni koma á fund nefndarinnar síðar.

Formaður utanríkismálanefndar greindi frá því í síðustu viku að hann vildi fá fulltrúa forsetaembættisins og utanríkisráðuneytisins á fund nefndarinnar til að skýra hvernig stóð á því að forseti Íslands tók sæti í Þróunarsjóði Indlands, sem hann telur forsetann ekki hafa heimild til að gera án samráðs við utanríkisráðherra. Fulltrúar þessara aðila mættu hins vegar ekki á reglulegan fund utanríkismálanefndar í morgun.

"Ég ætla að ræða þetta mál við utanríkisráðherra fá hann hingað á fundinn en hann komst ekki nú. Síðan sjáum við til hvert framhaldið verður," sagði Halldór Blöndal við upphaf nefndarfundar í morgun.

Hvenær heldur þú að utanríkisráðherra komist á fund til þín?

"Ja, það er nú ekki ákveðið," sagði Halldór.

Eftir á að hyggja segir Halldór að hann sjái ekki nauðsyn á að kalla forsetaritara fyrir utanríkismálanefnd, þar sem forsetinn vinni á ábyrgð utanríkisráðherra og sé sjálfur óábyrgur af öllum stjórnarathöfnum. En það hefur aldrei gerst í sögu lýðveldisins að forseti Íslands eða fulltrúar hans þurfi að sitja fyrir svörum þingnefndar. Halldór vill hins vegar að utanríkismálaráðherra mæti á fund nefndarinnar. Það sé nauðsynlegt fyrir nefndina að vita með hvaða hætti utanríkisráðherra stendur að utanríkismálastefnunni.

"Og eins ef einhver ágreiningur eða misskilningur er uppi milli utanríkisráðherra og forseta, eða ef einhver misskilningur er í gangi um hlutverk forseta Íslands, þá er gott að fá að vita það," sagði Halldór Blöndal formaður utanríkismálanefndar í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×