Innlent

Málið á Laugum fullrannsakað

Sigurður Brynjúlfsson, yfirlögregluþjónn á Húsavík, segir að það muni ráðast á næstu dögum hvort mál nokkurra drengja sem námu á brott stúlkur undir lögaldri úr heimavistarskólanum á Laugum verði sent til ríkissaksóknara. Málið þykir fullrannsakað og hefur lögfræðingur embættisins það nú undir höndum.

Skólameistari Framhaldsskólans á Laugum, Valgerður Gunnarsdóttir, vék í gær átta drengjum úr skólanum vegna málsins og hefur þeim verið gert að yfirgefa skólasvæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×