Innlent

15 ára falsaði debetkort

MYND/Stefán Karlsson

15 ára stúlka sótti um debetkort fyrir eldri konu og skilaði mynd af sér með. Hún vitjaði kortsins og tók út fimmhundruð krónur í hraðbanka. Upp komst um kortafalsið og hefur stúlkan fengið eins árs skilorðsbundin dóm.

Hún játaði brot sitt og hefur endurgreitt upphæðina sem hún sveik út af reikningnum. Dómurinn féll í Héraðsdómi Suðurlands í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×