Innlent

Þriggja bíla árekstur í hálku norðan Hvalfjarðarganga

MYND/Pjetur

Þriggja bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi skammt norðan við Hvalfjarðargöng nú fyrir stundu. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hvort einhver sé alvarlega slasaður en lögregla í Borgarnesi segir flughált frá Hvalfjarðargöngum og upp í Borgarnes. Fyrr í dag fór bíll út af veginum skammt frá afleggjaranum að Grundartanga en þá þurfti að beita klippum til að losa farþega og ökumann. Þeir slösuðust þó ekki alvarlega að sögn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×