Fjölgaði um 80 prósent í strætó þegar gjaldtöku var hætt 4. febrúar 2007 12:45
Farþegum með almenningsvögnum í Reykjanesbæ fjölgaði um áttatíu prósent þegar gjaldtöku var hætt í vögnunum. Árni Sigfússon bæjarstjóri telur að reynslan af ókeypis strætó sé afar jákvæð. Á grundvelli umhverfissjónarmiða hafa menn beint sjónum sínum að almenningssamgöngum og velt þeim kosti upp hvort ekki sé rétt að hafa strætisvagna ókeypis til að fjölga farþegum og minnka mengun, til dæmis vegna útblásturs og svifryks. Akureyringar hafa nýverið lagt af gjaldtöku í strætó og fyrstu tölur benda til 60 prósent aukningar. Í Reykjanesbæ hefur þetta verið við lýði í fjögur ár og skilað ótvíræðum árangri. Árni Sigfússon bæjarstjóri segir að notendafjöldi hafi aukist um áttatíu prósent fyrsta árið og haldist stöðugur síðan. Rekstur vagnanna kostar Reykjanesbæ 55 milljónir á ári. Árni bendir á aukna notkun meðal barna og unglinga - dregið hafi úr skutli foreldra með börn. Fullyrða megi að í Reykjanesbæ sé að vaxa upp kynslóð sem nýtir almenningsvagna. Það hefur verið rætt innan stjórnar Strætós á höfuðborgarsvæði að fara þessa leið. Fargjöld skila í dag um 700 miljónum á ári af heildarrekstrarkostnaði sem nemur 2,2 milljörðum króna. Ármann Ólafsson, stjórnarformaður Strætós, telur spennandi að skoða hvort ókeypis strætó geti leitt til farþegaaukningar, en benti einnig á í viðtali við Stöð 2 að fjölgun sérstakra akstursreina fyrir almenningsvagna væri vænleg leið til að fjölga notendum.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Fleiri fréttir „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Sjá meira