Innlent

Harður árekstur í Reykjanesbæ í gærkvöld

MYND/Guðmundur

Harður árekstur varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Aðalgötu í Reykjanesbæ um sjöleytið í gærkvöld. Lögregla og sjúkralið fóru á vettvang og voru tveir fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en meiðsl þeirra voru minni háttar. Báðir bílarnir eru hins vegar gjörónýtir.

Þá var einn tekinn með lítilræði af kannabis í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í nótt og einn tekinn grunaður um ölvun við akstur í Grindavík. Enn fremur gisti maður fangageymslu lögreglunnar vegna ölvunar og óspekta á skemmtistað í Reykjanesbæ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×