Innlent

Stórauknar tekjur og fjölgun starfa

Skatttekjur af álverinu í Straumsvík munu aukast um allt að þrjá milljarða á ári, þar af um milljarð til Hafnarfjarðar, við stækkun þess. Beinum og óbeinum störfum fjölgar um tæplega tólf hundruð en við hvert starf í álverinu verða til 2,5 störf annars staðar, að mati Samtaka atvinnulífsins. Talsmaður Sólar í Straumsvík segir nær að styðja við bakið á annarri og minna mengandi starfsemi.

Samtök atvinnulífsins og Alcan boðuðu til kynningarfundar um efnahagsleg áhrif af stækkun álversins í Straumsvík í Hafnarfirði í morgun. Í upphafi fundar greindi Lúðvík Geirsson bæjarstjóri m.a. frá því hvernig hafnfirðingar verða spurðir um hug sinn til stækkunarinnar hinn 31. mars næst komandi en spurningin verður svohljóðandi: Ertu fylgjandi eða andvígur stækkun álversins samkvæmt fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu? Eftir stækkunina segja talsmenn samtaka atvinnulífsins að bein og óbein störf tengd álverinu verði um eða yfir þrjú þúsund.

"Ef við lítum á vinnumarkaðinn þá felur stækkun Alcan í sér fjölgun starfsmanna um 350 ársverk," segir hannes Sigurðsson aðstoðar framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Síðan hafi niðurstöður leitt í ljós að fyrir hvert starf sem skapast í álverinu, verði til 2,5 störf annars staðar í Hafnarfirði og á höfuðbrogarsvæðinu. Þannig að fjölgun starfa starfa verði á endanum um tólf hundruð.

Þá mun stækkað álver skila auknum skatttekjum bæði til Hafnarfjarðar og ríkis, ekki hvað síst vegna breytinga á skattasamningi fyrirtækisins.

Hannes segir tekjur Hafnarfjarðar aukast úr rúmum 100 milljónum í hátt í 300 milljónir með breytingum á skattasamningi og eftir stækkun verði tekjur Hafnarfjarðar um 800 milljónir. "Það er verulega stór hluti af tekjum Hafnarfjarðarbæjar sem var með um 10 milljarða tekjur á síðasta ári," segir Hannes.

"Mér finnst þetta mjög einhliða og einföld framsetning. Það er eins og önnur tækifæri séu ekki til. Hér er ekkert verið að tala um möguleika þekkingarfyrirtækja, útrásarfyrirtækjanna. Hérna er verið að tala um gamal dags atvinnutækifæri," segir Sigurður P Sigmundsson talsmaður Sólar í Straumi, sem berst á móti stækkun álversins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×