Innlent

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks líklegust

Halldór Blöndal, reyndasti þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að núverandi stjórnarflokkar endurnýi samstarf sitt að loknum kosningum, fái þeir til þess traustan meirihluta. Að öðrum kosti myndi Sjálfstæðisflokkur ríkisstjórn með Samfylkingunni. Þetta kom fram í hádegisviðtalinu á Stöð 2.

Þegar aðeins rúmir þrír mánuðir eru til þingkosninga metur fyrrverandi þingforseti og ráðherra stöðuna svo að líklegast sé að sjálfstæðismenn og framsóknarmenn endurnýji stjórnarsamstarfið í vor.

Þessi reyndasti þingmaður sjálfstæðismanna segir næsta valkost vera samstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×