Rannsóknaðferðir eins og í lögregluríkjum 1. febrúar 2007 15:14 MYND/GVA
Félag íslenskra stórkaupmanna mótmælir því harðlega að Samkeppnieftirlitið hvetji starfsfólk fyrirtækja sem vinni við framleiðslu, dreifingu og sölu á matvörum til að tilkynna um hugsanleg brot á samkeppnislögum og segir slíkar rannsóknaraðferðir aðeins tíðkast í lögregluríkjum. Í yfirlýsingu frá félaginu segir enn fremur að það leggi mikla áherslu á virkt samkeppniseftirlit en engu að síður verði rannsóknir samkeppnisyfirvalda að gæta meðalhófs. Þær megi ekki íþyngja einstaklingum eða fyrirtækjum meira en nauðsynlegt þyki en það hafi Samkeppniseftirlitið gert í gær með yfirlýsingum sínum þar sem fólk sem starfi við framleiðslu, dreifingu eða sölu á matvörum sé hvatt til að senda eftirlitinu ábendingar um hugsanleg brot á samkeppnislögum. Neytendastofa telur nauðsynlegt að virkja almenning til eftirlits með verði á vörum og þjónustu í framhaldi af ákvörðun ríkisstjórnarinnar um lækkun á virðisaukaskatti af matvælum og þjónustu veitinga- og gistihúsa frá og með 1. mars. Hún hefur sent frá sér hvatningu til allra neytenda í landinu í gær þar sem þeir eru beðnir að taka virkan þátt í aðhaldi og eftirliti með því að verðlagsbreytingar skili sér til neytenda. Á heimsíðu Neytendastofu hefur af þessu tilefni verið opnuð vefgátt undir nafninu: „Verðlagsábendingar – Láttu vita!“ Þar geta neytendur komið á framfæri ábendingum, nafnlaust, eða undir nafni, um það hvort fyrirhugaðar verðlagsbreytingar komi til framkvæmda hjá þeim aðilum sem þeir eiga viðskipti við. Neytendastofa mun vinna úr upplýsingunum.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira