Hafa heimild til að lengja uppsagnarfrest fangavarða 1. febrúar 2007 12:30
Fangelsismálastofnun hyggst nýta sér lagaheimild til að lengja uppsagnarfrest fangavarða um sex mánuði haldi þeir uppsögnum sínum til streitu. Um fjörutíu uppsagnarbréf hafa borist stofnuninni. Áttatíu og tveir fangaverðir eru starfandi á landinu og hefur Fangelsismálastofnun borist uppsagnarbréf frá um helmingi þeirra eða þrjátíu og níu. Fangaverðir eru ósáttir með laun sín og segja að þau séu um þrjátíu prósent lægri en laun lögreglumanna sem er viðmiðunarstétt fangavarða. Ljóst er að ófremdarástand skapast í fangelsum landsins haldi fangaverðir uppsögnum sínum til streitu. Uppsagnirnar eru frá og með deginum í dag og ef miðað er við þriggja mánaða uppsagnarfrest þá hætta fangaverðir 1. maí næstkomandi. Í tilkynningu sem dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur sent frá sér segir að fangaverðir fari fram á að launakjör þeirra verði bætt umfram það sem gildandi samningar geri ráð fyrir. Jafnframt segir að af hálfu dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og Fangelsismálastofnunar verði beitt þeim lagalegum úrræðum, sem fyrir hendi eru, þegar aðstæður sem þessar skapast. Valtýr Sigurðsson, fangelsismálastjóri, segir þarna meðal annars vísað til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Í þrítugustu og sjöundu grein þeirra laga kemur fram að stjórnvöld geti áskilið sér rétt til lengri uppsagnarfrests eða allt að sex mánuði. Þetta þýðir að hægt er að halda fangavörðunum í starfi til 1. desember. Ljóst er því að nokkur harka er hlaupin í málin en í samtali við fréttastofuna sagði Valtýr að einnig yrði hugað að öðrum lagalegum úrræðum ef á þurfi að halda.
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Fleiri fréttir Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Sjá meira