Innlent

Flugslysaæfing ákveðin

Flugslysaæfing verður haldin í Skagafirði í vor en æfingin er hugsuð sem lokahnykkur á endurskoðun flugslysaáætlunar fyrir flugvöllinn á Sauðárkróki. Þetta var ákveðið á fundi fulltrúa viðbragðsaðila í Skagafirði, fulltrúa Flugstoða og Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í gær.

Flugslysaáætlanir eru til fyrir flesta flugvelli landsins og eru þær hluti af séráætlunum almannavarna í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×