Innlent

Klósett sprengt upp í grunnskóla

MYND/Vilhelm

Klósett var sprengt upp í einum af grunnskólum borgarinnar í gær. Klósettið splundraðist og þykir mildi að enginn skyldi slasast við uppátækið.

Á vef lögreglunnar er einnig sagt frá því að á öðrum stað í borginni var vatnsslöngu stungið inn um glugga í kjallaraíbúð og skrúfað frá. Ófögur sjón mætti húsráðendum þegar þeir komu heim til sín enda hafði vatnið runnið um allt. Bæði málin eru í rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×