Innlent

Beita á lagalegum úrræðum vegna uppsagna fangavarða

Uppsagnir hafa borist frá 39 fangavörðum.
Uppsagnir hafa borist frá 39 fangavörðum. MYND/E.Ól.

Fangelsismálastofnun ríkisins hafa borist uppsagnir frá 39 fangavörðum sem starfa í fangelsum landsins. Uppsagnirnar eru frá og með 1. maí næstkomandi. Í tilkynningu sem dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur sent frá sér segir að kjarasamningar við fangaverði séu í gildi. Fangaverðir fari fram á að launakjör þeirra verði bætt umfram það sem samningar geri ráð fyrir. Í tilkynningunni segir jafnframt að af hálfu dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og Fangelsismálastofnunar verði beitt þeim lagalegum úrræðum, sem fyrir hendi eru, þegar aðstæður sem þessar skapast.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×