Tefja ferðir ráðherra á HM fyrir störfum þingsins? 31. janúar 2007 14:31 Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra á leik Íslands og Danmerkur í Hamborg í gær. MYND/Pjetur
Spurt var um það á Alþingi hvort ekki væri hægt að taka fyrir fleiri fyrirspurnir á Alþingi vegna þess að ráðherrar streymdu á heimsmeistaramótið í handknattleik. Það var Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, sem vakti athygli á því að 60-70 fyrirspurnum frá þingmönnum væri ósvara og að fáar væru teknar fyrir í dag. Benti hann á að fjölmargir ráðherrar væru fjarverandi og að á íþróttasíðum mætti lesa að þeim fjölgaði á HM. Spurði hann hverju þetta sætti. Jón Kristjánsson, starfandi þingforseti, sagði ekki gott mál að svo margar fyrirspurnir biðu en benti á að ástæðan fyrir því væri bæði fjarvera ráðherra og þingmanna. Spurði Mörður Árnason, flokksbróðir Kristjáns, þá hvaða ráðherrar hefðu tilkynnt fjarveru sýna og hvaða ástæður væru fyrir því. Hann teldi að vissu leyti eðilegt að menntamálaráðherra, sem væri ráðherra íþróttamála, væri viðstaddur stórviðburði í útlöndum tengdum Íslandi en benti jafnframt á að sést hefði til Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra leik Íslendinga og Dana í sjónvarpi í gær. Jón Kristjánsson sagðist hins vegar ekki hafa upplýsingar um fjarveru ráðherra en sagði auðvelt að afla þeirra. Fleiri þingmenn stjórnarandstöðu stigu í pontu og bentu á að ráðherrar hefðu sagt að greiða þyrfti fyrir þingstörfum vegna þess hve starfstími þess væri stuttur þetta vorið en ráðherrar leggðu ekki sitt lóð á vogarskálarnar með því að svara ekki fyrirspurnum.
Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Innlent Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Erlent Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Erlent Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Erlent Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Erlent Fleiri fréttir Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Sjá meira