Innlent

Bíll fór út í Ölfusá

Ölfusá
Ölfusá MYND/Stefán

Flytja þurfti ungan karlmann á slysadeild eftir að bíll hans fór út í Ölfusá á ellefta tímanum í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi var maðurinn einn í bílnum, sem fór út í ána við Árveg rétt ofan við Ölfusárbrú. Bíllinn lenti á rifi í ánni og maraði í hálfu kafi þegar björgunarsveitarmenn í Björgunarfélaginu Árborg náðu honum. Hann var fluttur á slysadeild Landspítala-háskólasjúkrahús í Fossvogi en ekki er vitað um líðan hans á þessari stundu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×