Innlent

Kjálkabrotnaði í vinnuslysi

MYND/KK

Karlmaður kjálkabrotnaði og hlaut skurði á andliti í vinnuslysi á Akureyri í dag. Maðurinn, sem er starfsmaður gámafyrirtækis, klemmdist á milli gámabíls og jarðýtu á öskuhaugunum á Akureyri þegar hann var að reyna að losa annað tækið. Lögreglan segir mildi að maðurinn hafi ekki slasast meira en krókur aftan á jarðýtunni kom í veg fyrir að tækið fór ekki yfir manninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×