Þungatakmarkanir og frost töfðu framkvæmdir á Eyrarbakka 30. janúar 2007 16:15
Framkvæmda- og veitusvið og Fjölskyldumiðstöð Árborgar kenna þungatakmörkunum á vegum og frosti í jörðu um að ekki hafi verið hægt að ljúka framkvæmdum á skólalóð barnaskólans á Eyrarbakka í tæka tíð. Eins og greint var frá í gær sendu kennarar nemendur í 6.-10. bekk heim úr skólanum í gærmorgun til þess að mótmæla seinagangi við verkið. Í yfirlýsingu frá framkvæmda- og veitusviði og Fjölskyldumiðstöð Árborgar kemur fram að mikil íbúafjölgun hafi verið í Árborg á undanförnum árum með tilheyrandi uppbyggingu á skólamannvirkjum. Hafi meðal annars verið settar upp tvær útistofur á Eyrarbakka og hafi byggingu þeirra lokið um miðjan desember. Þegar það hafi átt að flytja þau á vettvang hafi verið þungatakmarkanir á veginum milli Selfoss og Eyrarbakka og þeim ekki aflétt fyrr en 8. janúar. Því hafi allar áætlanir farið úr skorðum og ekki tekist að ljúka vinnu við uppsetningu þeirra og frágangs í jólaleyfi nemenda eins og til stóð. Í kjölfarið hafi hins vegar tekið við frost og snjór sem hafi gert jarðvegsvinnu erfiða og því ekki hægt að ganga endanlega frá plani fyrir framan útistofur fyrr en í lok síðustu viku. Segir enn fremur í tilkynningu þessara stofnana Árborgar að því miður hafi þurft að vinna að endurbótum á eldra húsnæði á skólatíma að hluta til en það hafi skapað nokkur óþægindi fyrir starfsfólk og nemendur. Starfsmenn sveitarfélagsins hafi kappkostað að vinna í nánu samstarfi við stjórnendur stofnunarinnar í tengslum við framkvæmdirnar og reynt að hraða framkvæmdum eins og kostur hafi verið miðað við aðstæður. Framkvæmdum við útistofur hafi að mestu verið lokið síðastliðinn laugardag og aðeins hafi verið eftir lítils háttar frágangur í kringum húsin og tengivinna.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira