Innlent

Leggja fram frumvarp um lengri starfstíma Alþingis í þriðja sinn

MYND/GVA

Þrír þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt fram frumvarp í þriðja sinn um lengri starfstíma Alþingis. Þar er gert ráð fyrir að Alþingi komi saman 15. september að hausti og að reglulegum þingstörfum verði lokið fyrir 15. júní.

Í athugasemdum við frumvarpið er bent á að starfstími Alþingis á liðnum þingum hafi leitt í ljós úrelt starfsfyrirkomulag og sýnt að þörf sé á breyttri vinnutilhögun Alþingis. Með lengri starfstíma gefist betri tími í umræður og umfjöllun um frumvörp.

Því sé lagt til að haustþing hefjist hálfum mánuði fyrr en nú sé og vorþing standi mánuði lengur en nú. Með þessu sé starfstími Alþingis færður í svipað horf og gildir á þjóðþingum annars staðar á Norðurlöndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×