Innlent

Ingibjörg Sólrún hefur enga trú á því að Jón Baldvin bjóði fram

 

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefur enga trú á því að Jón Baldvin Hannibalsson geri alvöru í því að bjóða fram nýjan lista í alþingiskosningum. Hann skilji manna best að það megi ekki stökkva frá borði þrátt fyrir ágjöf. Það viti þeir best sem sjálfir hafi staðið í brúnni.

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, orðaði möguleikann á slíku framboði í Silfri Egils í gær. Heimildir fréttastofu herma að Jón Baldvin hafi rætt við Ómar Ragnarsson og jafnvel fleiri um að ganga til liðs við framboðið.

Hart hefur verið sótt að Ingibjörgu Sólrúnu undanfarið vegna lélegs árangurs Samfylkingarinnar í skoðanakönnunum. Talað er um að flokkurinn sé í frjálsu falli en kannanir sýna fylgi í kringum tuttugu prósent og jafnvel lægra. Ingibjörg Sólrún segir erfitt að segja til um hvað valdi þessu, þarna geti komið til margir ólíkir þættir, bæði umræða um innflytjendamál og umhverfismál. Þá kunni að vera að flokkurinn hafi ekki yddað stefnu sína nægilega vel.

Hún segist þó taka niðurstöðum slíkra kannanna með fyrirvara enda væri stór hluti kjósenda enn óákveðinn. Hún sagði aðspurð að það væri engin óeining innan Samfylkingarinnar, flokksmenn væru ekki að troða illsakir hver við annan. Þetta væri einfaldlega spurning um að ásýndin yrði skýrari.

Ingibjörg Sólrún var að lokum spurð að því hvort það hefði verið rætt innan flokksins að hún stigi niður og annar tæki við formennsku fyrir alþingiskosningar. Hún sagði spurninguna fáránlega. Fólk gefist ekki upp þrátt fyrir tvær vondar skoðanakannanir. Samfylkingin muni ganga frá næstu kosningum með miklu meira fylgi en þessar kannanir gefi til kynna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×