Ísland lendir aldrei neðar en í 3. sæti milliriðilsins 27. janúar 2007 22:54 Snorri Steinn Guðjónsson, Ólafur Stefánsson og Róbert Gunnarsson geta huggað sig við það að sama hvernig fer gegn Þjóðverjum á morgun, þá munu þeir líklegast sleppa við að mæta Króötum í 8-liða úrslitum HM. MYND/Pjetur
Nú þegar aðeins ein umferð er eftir af keppni í milliriðlum HM í handbolta liggur nokkuð ljóst fyrir hvaða lið fara í 8-liða úrslit. Lokastaða riðlanna ræðst hins vegar alfarið af leikjum dagsins. Þó er ljóst að Ísland verður ávallt fyrir ofan Frakkland, sama hvernig leikir dagsins fara, og þar með getur liðið ekki endað neðar en í 3. sæti milliriðilsins. Mikilvægi sigursins á Frökkum í riðlakeppninni er í raun sífellt að aukast því með honum er ljóst að Íslendingar verða ávallt ofar en Frakkar í milliriðli 1, fari svo að liðin verði jöfn að stigum eftir leiki dagsins. Fari svo að Íslendingar tapi fyrir Þjóðverjum í dag verður raunin sú, því fastlega er búist við því að Frakkar vinni auðveldan sigur á Túnisum. Þá yrðu bæði lið með sex stig en Íslendingar yrðu í þriðja sæti og Frakkar í því fjórða. Sú niðurstaða yrði enn þýðingarmeiri í ljósi þess að liðið í fjórða sæti milliriðils 1 mætir að öllum líkindum firnasterku liði Króata í 8-liða úrslitum. Króatar mæta Spánverjum í hreinum úrslitaleik um efsta sætið í milliriðli 2 í dag og eru Króatar taldir nokkuð sigurstranglegri miðað við spilamennsku liðanna það sem af er. Að sama skapi er ljóst að ef Ísland tapar fyrir Þýskalandi mætir liðið annaðhvort Króatíu eða Spáni í 8-liða úrslitum. Eins og þessi upptalning ber með sér eru ýmsir möguleikar eru fyrir hendi í leikjunum í dag og er hægt er að velta tölfræðinni fyrir sér á fleiri vegu. Pólverjar mæta Slóvenum í dag og eru mun sigurstranglegri, ekki síst í ljósi þess að Slóvenar eiga enga möguleika á að fara áfram í 8-liða úrslit. Þar sem Pólland vann Ísland verður liðið ávallt fyrir ofan Íslendinga í stigatöflunni, nema að svo ólíklega vildi til að Slóvenar sigruðu Pólverja og Íslendingar sigruðu Þjóðverja. Þá yrðu Íslendingar í efsta sæti milliriðils 1 og mættu að öllum líkindum Ungverjum eða Dönum í 8-liða úrslitum. Til að flækja dæmið enn frekar er hægt að setja dæmið upp á þann hátt að Íslendingar tapi fyrir Þjóðverjum , Pólverjar töpuðu fyrir Slóvenum en Frakkar sigruðu Túnis. Þá yrði Þýskaland í efsta sæti milliriðilsins með 8 stig en Ísland, Frakkland og Pólland enduðu öll með sex stig. Þá myndi íslenska liðið hins vegar hirða annað sætið, þar sem innbyrðis markatala liðsins í viðureignunum gegn Frökkum og Pólverjum er hagstæðust. Meira um leikina, úrslitin og stöðuna á HM 2007 vefnum á Vísir.is
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs Sjá meira