Innlent

Forseti Íslands taki ekki að sér opinber trúnaðarstörf fyrir önnur ríki

Formaður utanríkismálanefndar Alþingis, Halldór Blöndal, segir að forseti Íslands eigi ekki að taka að sér opinber trúnaðarstörf fyrir önnur ríki og eigi að gæta hófs í metnaði sínum. Hann telur koma til greina að utanríkismálanefnd Alþingis ræði setu forsetans í þróunarráði Indlands. Forsetaskrifstofan tilkynnti fyrir viku að forseti Íslands hefði tekið sæti í þróunarráði Indlands. Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, lýsti þeirri skoðun sinni í leiðara um helgina að hér virtist vera um utanríkispólitíkst mál að ræða sem utanríkisráðherra hefði átt að kynna utanríkisnefnd Alþingis. Ráðherra skuldi skýringar. Utanríkisráðherra hefur kallað eftir skýringum frá forsetaembættinu og í dag fundaði Örnólfur Thorsson forsetaritari með Grétari Má Sigurðssyni ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytis og Aðalheiði Sigursveinsdóttur, aðstoðarmanni Valgerðar Sverrisdóttur. Að sögn Aðalheiðar gaf forsetaritari skýringar og verður þeim komið til ráðherra, sem kemur til landsins á morgun.

Svar forsetaskrifstofunnar, við fyrirspurn um hversvegna ekki hefði verið haft samráð við utanríkisráðuneytið, birtist í Morgunblaðinu í dag og þar segir að forsetinn sæki umboð til þjóðarinnar en heyri ekki undir einstök ráðuneyti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×