Krefst skýringa á skipun í stjórn Norræna blaðamannaskólans 30. janúar 2007 13:27
Arna Schram, formaður Blaðamannafélagsins, hefur sent menntamálaáðuneytinu harðort bréf þar sem krafist er skýringa á því að ráðuneytið hafi hunsað tilnefningar félagsins um fulltrúa í stjórn Norræna blaðamannaskólans, NJC, í Árósum. Á vef Blaðamannafélagsins er bréf Örnu birt en þar kemur fram að stjórn Blaðamannafélagsins lýsi undrun sinni á því að menntamálaráðuneytið hafi skipað aðra fulltrúa í sérfræðinganefnd norræna blaðamannaskólans NJC í Árósum en stjórn BÍ tilnefndi, en sérfræðinganefndin tók við af stjórn skólans eftir umdeildar skipulagsbreytingar á stofnunum Norrænu ráðherranefndarinnar. Segir Arna í bréfinu að ranglega sé farið með það á heimasíðu NJC að fulltrúar sérfræðinganefndarinnar séu skipaðir samkvæmt tillögu fjölmiðlasamtaka viðkomandi lands. Í fyrsta sinn í 50 ára sögu skólans sé tilnefning BÍ í stjórn hans hunsuð. Arna sagði í samtali við fréttastofu Vísis að samkvæmt beiðni ráðuneytisins hefði félagið tilnefnt tvo til starfans, aðalmann og varamann. Birgir Guðmundsson, lektor í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri, hefði verið tilnefndur sem aðalmaður en Svanborg Sigmarsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu, sem varamaður. Þessar tilnefningar hafi Elfa Ýr Gylfadóttir, deildarstjóri fjölmiðladeildar menntamálaráðuneytisins, staðfest við hana fyrir jól. Hins vegar hafi hún nýlega litið á heimasíðu Norræna blaðamannaskólans og komist að því að Ólafur Stephenssen, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins, og umrædd Elfa Ýr hefðu verið tilnefnd sem aðal- og varamaður fyrir hönd Íslands í sérfræðinganefnd skólans. Hún spyrji sig því hvort þetta þýði að ráðuneytið vilji ekki starfa með Blaðamannafélagi Íslands innan NJC, en það væri þá einsdæmi á Norðurlöndum. Arna segist ekkert hafa á móti þeim sem tilnefndir hafi verið en hún sé mjög ósátt við þessi vinnubrögð ráðuneytisins. Hún hafi sent ráðuneytinu umrætt bréf í síðustu viku og óskað eftir svörum sem fyrst en engar skýringar fengið enn á þessum ákvörðunum.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir Erlent Fleiri fréttir Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Sjá meira