Fjármunir verði teknir frá hátæknisjúkrahúsi í vegagerð 1. febrúar 2007 18:30
Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar, vill að framkvæmdum við hátæknisjúkrahús verði frestað og fjármunirnir settir í staðinn í vegagerð. Stjórnarandstaðan þrýstir á að samgönguáætlun verði lögð fram og að í henni verði gert ráð fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar. Stjórnarandstöðuþingmenn eru orðnir langeygir eftir samgönguáætlun, enda má reikna með að í henni sé mikið pólitískt púður fyrir kosningabaráttuna í vor. En samgönguáætlunin er nú til meðferðar í þingflokkum stjórnarflokkanna. Björgvin G Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi vildi að samgönguráðherra svaraði því á þinginu í dag hvort til stæði að bæta Suðurlandsveg með s.k. 2+1 leið eða 2+2 leið. "Það fara út fréttir um það í hinum og þessum fjölmiðlum að sjálfsögðu, að samgönguáætlun sé dögum saman í þingflokkum stjórnarflokkanna," sagði Björgvin G Sigurðsson þingmaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag. Þar liggi fyrir að það eigi að svíkja gefin fyrirheit um 2 + 2 veg austur fyrir fjall, fara 2 + 1 veg og með einhverjum skollaleik kalla það tvöföldun á einhverjum tíu árum. "Margar þingræður háttvirtra þingmanna stjórnarandstöðunnar og þá sérstaklega Samfylkingarinnar, hefjast á því eins og fréttir herma og síðan búa menn til í kring um það tilefni hér til umræðna um störf þingsins," sagði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Hann sagði þetta sérkennileg vinnubrögð, nær væri að stjórnarandstaðan biði eftir samgönguáætluninni til að byggja umræðuna á raunverulegum tillögum. "Ég held að það sé ekki ástæða fyrir samgönguráðherra að kveinka sér undan því þótt samgöngumál séu rædd hér á þinginu. Ráðherra á eina auðvelda leið út úr því að menn séu þar að byggja á fréttaflutningi fjölmiðla og það er að koma samgönguáætlun fyrir þingið á eðlilegum tíma," sagði Steingrímur J Sigfússon formaður Vinstri grænna. Það er því greinilegt að þingmenn stjórnarandstöðunnar eru orðnir óþreyjufullir að fá að sjá samgönguáætlunina, en hún verður væntanlega ekki lögð fyrir þingið fyrr en á mánudag. Einar Oddur Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður fjárlaganefndar vill hins vegar taka peninga af hátæknisjúkrahúsi og setja þá í vegamál. En áætlað er að um 15 milljarðar króna fari á næstu árum til byggingar hátæknisjúkrahúss. "Já, ég er ekkert frá því að það sé miklu brýnni þörfin fyrir að bæta samgöngurnar á Íslandi heldur en að byggja stórt sjúkrahús," segir Einar Oddur. "Ég held að það geti miklu frekar beðið og þoli bið. Það er hrópað á okkur alls staðar frá um auknar vegasamgöngur, vegna þess að menn sjá og finna þörfina. Það er bæði hérna á Reykjavíkursvæðinu, ekki síst, og náttúrlega út á landi þar sem vantar á að byggja vegina og menn eru enn þá með ákaflega slæmar samgöngur.," sagði Einar Oddur Kristjánsson.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira