Innlent

Tillaga að spurningu vegna kosningar um stækkun Alcan lögð fram

MYND/Anton Brink

Tillaga um orðalag spurningar vegna íbúakosningar í Hafnarfirði í tengslum við stækkun álvers Alcan í Straumsvík var lögð fram á bæjarráðsfundi í Hafnarfirði í dag.

Tillagan kemur frá ráðgjafarfyrirtækinu Capacent og hljóðar svo: „Ertu fylgjandi eða andvígur stækkun álversins samkvæmt fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu?"

Eins og kunnugt er verður kosið um málið 31. mars og hefur bæjarráð falið lýðræðis- og jafnréttisfulltrúa, í samráði við Capacent, að senda tillöguna til hagsmunaaðila til umsagnar. Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir að tillagan geti tekið breytingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×