Utanríkisráðherra ekki ofboðið af forseta Íslands 1. febrúar 2007 18:30
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra telur að ekki verði neinir eftirmálar af því að forseti Íslands settist í þróunarráð Indlands, án samráðs við utanríkisráðuneytið, en telur að brýna þurfi samskiptareglur forsetans og ráðuneytisins. Formaður utanríkismálanefndar hefur kallað utanríkisráðherra á fund nefndarinnar vegna forsetans. Það kom mörgum í ríkisstjórn Íslands og á Alþingi á óvart þegar forseti Íslands tilkynnti á þriðjudag í síðustu viku, að hann hefði tekið sæti í þróunarráði Indlands. Þetta gerði forsetinn án samráðs við utanríkisráðuneytið. Utanríkisráðherra segir báða aðila sammála um að skýra þurfi boðleiðir milli embættanna. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra vill ekkert fullyrða um það hvort forsetinn hafi með þessu farið út fyrir sitt verksvið. "Aðalatriðið er að við vitum meira um það sem forsetinn aðhefst og hvað hann hefur í huga og það er líka gagnkvæmt. Það er einnig mikilvægt að forsetinn þekki vel til þess sem starfað er inni í utanríkisráðuneytinu og hvað þar er framundan og hvaða stefna þar er uppi. Því við erum ein þjóð í einu landi og mikilvægt að samræmi sé í málflutningi," segir utanríkisráðherra. Halldór Blöndal formaður utanríkismálanefndar er ekki sáttur við framferði forsetans og hefur kallað utanríkisráðherra á fund nefndarinnar næst komandi miðvikudag. "Ég sé það ekki fyrir mér hvernig forseti Íslands getur verið í opinberu starfi fyrir aðra þjóð. Ef þetta er ekki á vegum inverska ríkisins, er það þá á vegum einkaaðila? Og hvaða einkaaðilar standa þá að þessu ráði. Eru þetta launuð störf', spurði Halldór í hádegisviðtalinu á Stöð tvö í dag. Utanríkisráðherra ítrekar að skýra verði samskiptareglur embættanna en henni hafi þó ekki verið ofboðið. "Nei, nei. Þetta er ekki þannig mál að neinum sé ofboðið held ég. Það er þetta engu að síður mál sem við sem sitjum í ríkisstjórn teljum að verði að vera í lagi. Og eftir viðtöl milli ráðuneytisins og ráðuneytisins er ég sannfær um að þannig er það líka hinum megin. Þannig að þetta er fyrst og fremst að mínu mati mál sem við getum haft í betra farvegi. Þannig að þá þurfi ekki að vera um neinar uppákomur að ræða. Og eftirmálar engir eða hvað? Ég get ekki séð það, sagði Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira