Stjórnarandstaðan að springa á biðinni 1. febrúar 2007 12:07
Samgönguráðherra vildi ekki upplýsa það á Alþingi í morgun hvenær von væri á samgönguáætlun til umræðna á þinginu. Mikill hiti var í umræðunni og snupraði forseti þingsins einn þingmann fyrir brot á þingsköpum í ræðu sinni. Samgönguáætlun er ítarlegt þingskjal þar sem kveðið er á um framkvæmdir í vegagerð, flugmálum og málefnum siglinga. Stjórnarandstöðuþingmenn eru orðnir langeygir eftir áætluninni, enda má reikna með að í henni sé mikið pólitískt púður fyrir kosningabaráttuna í vor en samgönguáætlunin er nú til meðferðar í þingflokkum stjórnarflokkanna. Björgvin G Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í Suðurkjördæmi vildi að samgönguráðherra svaraði því hvort til stæði að bæta Suðurlandsveg með svokallaðri 2+1 leið eða 2+2 leið. Björgvin sagði misvísandi fréttir berast innan úr stjórnarflokkunum um það hvor leiðin verði farin varðandi Suðurlandsveg. Beitt væri brellum til að láta líta út fyrir að tvöfalda ætti veginn en það ætti að gerast á tíu árum. Valdimar Leó Friðrikssyni, þingmanni Frjálslynda flokksins, var heitt í hamsi í umræðunni. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, greip fram í fyrir Valdimar í ræðustóli og spurði þingmanninn hvenær hann hefði fengið áhuga á Suðurlandsvegi. Þá spurði Valdimar Sigurð hvort hann gerði sér ekki grein fyrir því að Suðurlandsvegur væri dauðagildra og spurði svo hvort hann væri ekki kominn með bílprófið aftur. Sigríður Anna Þórðardóttir forseti Alþingis sá ástæðu til að snupra Valdimar fyrir þessi ummæli og benti honum á að þingmenn ættu ekki að ávarpa hver annan í annarri persónu úr ræðustóli Alþingis og þeir ættu heldur ekki að eiga í samræðum úr ræðustóli. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra gaf engin svör um það hvenær mætti eiga von á að stjórnarflokkarnir lykju umræðum sínum um samgönguáætlunina þannig að þingheimur fengi að líta hana augum. Hann minnti á að samgönguáætlun fjallaði ekki eingöngu um vegamál heldur einnig flugmál, flugöruggismál og málefni siglinga.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Innlent Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Innlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Sjá meira