Á ekki að snúast um allsherjar refsigleði 13. febrúar 2007 12:00
Forystumenn Samtaka atvinnulífsins gagnrýna harðlega fyrirhugaðar breytingar á samkeppnislögum og segja að refsigleði hafi ráðið för við samningu þeirra. Þá múlbindi frumvarpið forráðamenn samtakanna, þar sem skoðanir þeirra mætti túlka sem óeðlileg afskipti af samkeppni. Fyrir Alþingi liggja frumvörp um breytingar á annars vegar lögum um fjármálastarfsemi og hins vegar á samkeppnislögum. Innan Samtaka atvinnulífsins (SA) og í fjármálaheiminum ríkir óánægja með lítið samráð löggjafans og stjórnvalda við þessi samtök. Á kynningarfundi í morgun kom fram að við brot á lögum um fjármálafyrirtæki sé verið að tífaldist sektir á einstaklinga og tuttugu og fimmfaldist á fyrirtæki og sömuleiðis sé lengt í refsivist fyrir brot á lögunum. Þá megi túlka það svo að ef forráðamenn Samtaka atvinnulífsins setji fram skoðanir á t.d. húsnæðismarkaðnum, megi túlka þær sem óeðlileg áhrif á markaðinn. "Það má alveg halda því fram að það séu ýmsir aðilar á markaðnum sem telja að sér vegið þegar við höfum slíkar skoðanir. Og að þeir geti leitað til samkeppnisyfirvalda og látið á það reyna hvort að þær skoðanir sem við setjum fram séu til þess að hvetja til brota á samkeppnislögunum," segir Vilhjámur Egilsson framkvæmdastjóri SA. Þá segir Vilhjálmur að úttekt lögmanns samtakanna leiði í ljós að verið sé að ganga lengra í refsingum á einstaklinga og fyrirtæki en gengur og gerist í nágrannalöndum. "Samkeppnislögin eru til staðar fyrir atvinnulífið en ekki gegn því," segir Vilhjálmur. Og fyrir almenning? "Nákvæmlega fyrir allt samfélagið. Og þess vegna þurfa þessar reglur að vera til. Þær þurfa að vera uppbyggjandi og það þarf að vera hægt að vinna með þeim. En þetta á ekki að vera ein stór allsherjar refsigleði," segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira