Fótbolti

Kanarnir eyðilögðu Wembley

Bilic segir Wembley í slæmu ástandi
Bilic segir Wembley í slæmu ástandi NordicPhotos/GettyImages

Slaven Bilic, þjálfari Króata, er mjög óhress með ástandið á sparkvellinum á Wembley í Lundúnum fyrir leikinn við Englendinga í kvöld.

"Völlurinn er ekki góður og ekki í því standi sem maður átti von á þegar maður mætti á Wembley. Þetta gerist ef menn hleypa hóp af 150 kílóa þungum Bandaríkjamönnum með hjálma á knattspyrnuvöll," sagði Bilic í samtali við breska sjónvarpið í morgun.

Hann vísaði þarna til NFL-leiksins sem spilaður var á Wembley um daginn, en völlurinn var í mjög slæmu ástandi eftir þá útreið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×